For english survey ( https://www.surveymonkey.com/r/BFMBWHP)
Rannsóknarsetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst vinnur nú að verkefni fyrir Vestfjarðastofu og sveitarfélagið Vesturbyggð. Markmið verkefnis er að skoða ýmsa þætti er varða ímynd nýs sveitarfélags í Vesturbyggð og hvernig íbúar telji að vinna megi að farsælum byggðabrag.
Þessi könnun er valkvæð og þér ber ekki skylda til að svara könnuninni eða einstökum hlutum hennar. Ekki verða birtar upplýsingar sem rekja má til einstaklinga, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Rannsóknargögn og útreikningar á niðurstöðum eru í höndum sérfræðinga hjá rannsóknarsetrinu. Spurningar eru staðlaðar fyrir utan opnar spurningar í lokin, þar sem mikilvægt er að fá álit íbúa á málefnum sveitarfélagsins.
Verkefnisstjóri rannsóknar er dr. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, sérfræðingur við Rannsóknarsetrið. Hafir þú athugasemdir eða spurningar má hafa samband í netfangið gretaj@bifrost.is
Við hvetjum þig til að svara spurningum eftir bestu sannfæringu og getu, hvernig þín upplifun og reynsla er af búsetu og búsetuskilyrðum.
