Ferðamálastofa óskar eftir upplýsingum um reynslu ferðaþjónustufyrirtækja af breytingum á fjarskiptasambandi í kjölfar lokunar 2G og 3G farsímakerfa hér á landi.
Markmið könnunarinnar er að meta hvort og með hvaða hætti breytingarnar hafi haft áhrif á starfsemi fyrirtækja, fjarskipti starfsmanna og öryggi ferðamanna. Sérstaklega er óskað eftir dæmum um atvik, næratvik eða aðstæður þar sem skert fjarskiptasamband hefur valdið vandkvæðum.
Ekki er hægt að rekja svör til einstakra fyrirtækja en svör verða nýtt til að draga upp heildstæða mynd af stöðunni og meta hvort þörf sé á frekari aðgerðum. Vinsamlega látið þann starfsmann sem best þekkir til starfseminnar og fjarskiptamála fyrirtækisins svara könnuninni.