Skapandi starf í leikskóla

Kæri þátttakandi, markmið þessarar rannsóknar er að afla upplýsinga um skapandi (sjónlistir/myndlist), starf í íslenskum leikskólum hlutverk þess í daglegu starfi, viðhorf starfsfólks og þær aðstæður sem styðja eða hamla skapandi starfi. Með því að svara spurningalistanum samþykkir þú að svör þín verði notuð í rannsóknarskyni. Svör eru nafnlaus og ekki verður unnt að rekja þau til einstaklinga eða leikskóla. Spurningalistinn er sendur til deildarstjóra í öllum leikskólum í landinu.

Spurningalistinn samanstendur af 22 spurningum og tekur um 12-15 mínútur að svara honum.

Reynsla þín, þekking og sýn á skapandi starf eru mikilvægar fyrir rannsóknina. Niðurstöður hennar geta orðið framlag til umræðu um skapandi starfs í leikskólum. Kærar þakkir fyrir þátttökuna og stuðning við rannsóknina.

Um rannsakendur
Við sem stöndum að rannsókninni erum Kristín Dýrfjörð, dósent við Háskólann á Akureyri, (dyr@unak.is) og Anna Elísa Hreiðarsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri (annaelisa@unak.is). Við svörum öllum fyrirspurnum um rannsóknina.


Rannsóknin er styrkt af rannsóknarsjóði Háskólans á Akureyri.
Það sem átt er við með skapandi starfi í spurningalistanum
Í spurningalistanum nær hugtakið skapandi starf yfir sjónlistir/myndlist (myndsköpun) í víðum skilningi. Undir það geta fallið verkefni með pappír, liti, málningu, leir, textíl, tré, endurvinnanlegan og náttúrulegan efnivið. Skapandi verkefni geta verið skipulögð eða sprottið af frumkvæði barna og kennara, tekið stuttan eða langan tíma. Listinn er ekki tæmandi. Hugtakið skapandi starf er notað þar sem það er algengt í tengslum við leikskóla.
Spurningar um bakgrunn sem notaðar eru við úrvinnslu gagna (síðasta menntunarstig)
1.Menntun þín(Áskilið.)
2.Starfsaldur þinn í leikskóla(Áskilið.)
3.Merktu við það sem á best við. Flest börnin á deildinni minni eru:(Áskilið.)
4.Landfræðileg staðsetning leikskólans þar sem þú vinnur:(Áskilið.)
5.Rekstrarfyrirkomulag leikskólans:
6.Er í leikskólanum þínum ráðin manneskja til að sinna skapandi starfi (sjónlistir/myndlist)?(Áskilið.)
7.Telur þú hindranir og eða tækifæri geta falist í því þegar að sérstök manneskja sinnir skapandi starfi í leikskólanum?
8.Gerir þú greinamun á sköpun og föndri í leikskólastarfi?(Áskilið.)
9.Ef þér finnst vera munur á sköpun og föndri, hver er hann?
10.Hvað einkennir gott skapandi starf í leikskóla? Viltu gefa dæmi?(Áskilið.)
11.Hér á eftir eru nokkrar fullyrðingar um skapandi starf (sjónlistir/myndlist) í leikskólanum sem þú ert beðin um að afstöðu til.(Áskilið.)
Að mjög litlu leyti
Að litlu leyti
Að miklu leyti
Að mjög miklu leyti
Skapandi starf er sýnilegt í skólanámskrá
Skapandi starf hefur verið umræðuefni á starfsmannafundum síðastliðið ár
Skýr áhersla er lögð á skapandi starf í leikskólanum
Gott rými er til skapandi starfs utan deilda
Skapandi starf er sýnilegt í umhverfi leikskólans
Skapandi starf er hluti af daglegu starfi innan deildar
Gott rými er fyrir skapandi starf innan deildar
Fjölbreyttur efniviður er til staðar á deildinni
Skapandi starf á deildinni mætti vera meira
12.Hversu oft á eftirfarandi sér stað á deildinni þinni (sjónlistir/myndlist)?(Áskilið.)
Daglega
Nokkrum sinnum í viku
Vikulega
Mánaðarlega
Sjaldnar
Aldrei
Börn geta unnið að skapandi starfi af eigin frumkvæði
Börnum er boðið upp á skipulagt skapandi starf að frumkvæði kennara
Börn vinna að verkefnum sem þau geta haldið áfram með síðar
Börn taka þátt í skapandi verkefnum í samvinnu við önnur börn
13.Hvað af eftirfarandi efnivið geta börnin gengið að sjálf í daglegu starfi á deildinni þinni? Hér má merkja við eins mörg atriði og þú vilt.(Áskilið.)
Hér á eftir eru fimm spurningar sem byggja á fullyrðingum
14.Taktu afstöðu til eftirfarandi fullyrðinga um skapandi starf (sjónlistir/myndlist).

(Áskilið.)
Mjög sammála
Frekar sammála
Frekar ósammála
Mjög ósammála
Ég tel mikilvægara að leggja áherslu á ferlið en afraksturinn við skapandi starf
Ég hef góða þekkingu á skapandi starfi með börnum
Ég tel mig geta leiðbeint samstarfsfólki um skapandi starf
Ég myndi vilja meiri fræðslu um skapandi starf inn í leikskólann
Ég myndi nýta mér námskeið eða símenntun um skapandi starf
15.Taktu afstöðu til eftirfarandi fullyrðinga um skapandi starf (sjónlistir/myndlist).

(Áskilið.)
Mjög ósammála
Frekar ósammála
Frekar sammála
Mjög sammála
Hlutverk kennara er fyrst og fremst að útvega efnivið til sköpunar
Hlutverk kennara er að hvetja börn til að prófa nýjar leiðir
Kennarar ættu að sýna börnum hvernig á að vinna verkefni
Kennarar ættu að forðast að hafa áhrif á útkomu verkefna barna
16.Taktu afstöðu til efirfarandi fullyrðinga tengdar börnum og sköpun (sjónlistir/myndlist).(Áskilið.)
Lítið
Nokkuð
Mikið
Mjög mikið
Skapandi starf stuðlar að vellíðan barna
Skapandi starf styrkir sjálfstraust barna
Skapandi starf stuðlar að félagslegum samskiptum barna
Skapandi starf hjálpar börnum að tjá hugsanir sínar og tilfinningar
Skapandi starf nýtist vel börnum sem eiga erfitt með að tjá sig með orðum
Skapandi starf nýtist vel börnum með erlendan bakgrunn
Skapandi starf nýtist vel börnum með sértækar þarfir
17.Taktu afstöðu til efirfarandi fullyrðinga tengdar aldri barna og sköpun (sjónlistir/myndlist).(Áskilið.)
Mjög ósammála
Frekar ósammála
Frekar sammála
Mjög sammála
Yngstu börnin (yngri en 3ja ára) hafa jafnmikla þörf fyrir skapandi starf og eldri börn
Auðveldara er að vinna skapandi starf með eldri börnum en yngri
Skapandi starf með yngstu börnum (yngri en 3ja ára) krefst annarrar nálgunar en með eldri börnum
Skapandi starf er mikilvægara fyrir eldri börn en börn yngri en 3ja ára
18.Taktu afstöðu til efirfarandi fullyrðinga tengdar starfsháttum (sjónlistir/myndlist).
(Áskilið.)
Að mjög litlu leyti
Að litlu leyti
Hvorki né
Að miklu leyti
Að mjög miklu leyti
Starfsfólk styður hvert annað í skapandi starfi
Skapandi starf er metið til jafns við önnur námssvið
Leikskólastjóri/ar hvetur til skapandi starfs
Við gerum athuganir og skráningar í tengslum við skapandi starf
Börnin taka þátt í að ígrunda eigin verk og ferli
Nú eru aðeins fjórar spurningar eftir
19.Hversu oft að jafnaði á eftirfarandi sér stað (sjónlistir/myndlist)? (Áskilið.)
Daglega
Nokkrum sinnum í viku
3-5 sinnum í mánuði
Sjaldnar
Börn teikna þegar þau vilja
Börn lita á prentuð blöð (ljósrit/litabókablöð)
Börn mála
Börn skapa með leir
Börn smíða
Börn skapa með textíl
Börn skapa úti
Börn skapa með endurvinnanlegan efnivið
Börn skapa með með náttúrulegan efnivið
Börn skapa með stafrænum verkfærum
20.Er eitthvað sem að þínu mati hindrar að unnið sé með skapandi starf í leikskólanum?
21.Hvernig telur þú að megi efla skapandi starf í leikskólum (sjónlistir/myndlist)?(Áskilið.)
22.Getur þú komið með ábendingu um leikskóla sem þér finnst vera til fyrirmyndar í skapandi starfi. Hér má nefna fleiri en einn skóla og að sjálfsögðu eigin skóla ef við á. Skráið einungis nafn skóla og staðsetningu.