
Könnun fyrir faglega myndlistarmenn á Íslandi 2025 |
1 Kafli: Almennar upplýsingar
SÍM vinnur stöðugt að velferð félagsmanna. Eitt af þeim tækjum sem hafa skilað árangri í þeirri baráttu eru kannanir starfsumhverfi myndlistarmanna. Svör ykkar við þessari könnun eru ómetanleg í baráttunn fyrir bættum kjörum myndlistarmanna á Íslandi.
MARKMIÐ: Þessi könnun miðar að því að safna upplýsingum um vinnuskilyrði, fjárhagsstöðu og faglegt gildi myndlistar og myndlistarstéttar (myndlistarmanna) á Íslandi árin 2020 til 2024. Svörin við könnuninni munu vera lögð til grundvallar stefnumótandi ráðleggingum til íslenskra stjórnvalda sem miða að því að bæta hag myndlistarmanna, meðal annars betri fjárhagslegan stuðning og bætt vinnuskilyrði og bætta afkomu fyrir myndlistarmenn.
MIKILVÆGT: Þessi könnun er algjörlega nafnlaus. Svör þín eru trúnaðarmál og eingöngu notuð í rannsóknarskyni. Engum persónugreinanlegum upplýsingum verður safnað eða þeim deilt.