Við leitum að hressum og skapandi krökkum á Vesturlandi (10–18 ára) til að taka þátt í stýrihópi Barnó – Barnamenningarhátíðar Vesturlands 2026.
Stýrihópurinn gegnir mikilvægu hlutverki við undirbúning hátíðarinnar, þar sem börn fá raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á dagskrá, koma með hugmyndir og taka þátt í listrænni mótun hennar. Þetta er einstakt tækifæri fyrir krakka með áhuga á listum og menningu til að efla sköpunargleði, ábyrgð og sjálfstraust, auk þess að kynnast öðrum börnum með svipuð áhugamál víðs vegar af Vesturlandi. Börn af erlendum uppruna eru sérstaklega hvött til þátttöku.
Gert er ráð fyrir allt að sex fundum, sem hver um sig verður ekki lengri en 40 mínútur. Flestir fundir fara fram á netinu, en stefnt er að því að bjóða hópnum á einn til tvo staðfundi þar sem veitingar verða í boði.
Skilyrði er að þátttakendur séu búsettir á Vesturlandi.
Barnó fer fram í október 2026 um allt Vesturland og er vettvangur fyrir fjölbreytta og lifandi barnamenningu á svæðinu.
Frekari fyrirspurnir skulu sendast á menningarfulltrúa SSV, sigursteinn@ssv.is