Danskt sumarkvöld með GOSH & Hagkaup

Hagkaup x GOSH

Gosh Copenhagen & Hagkaup bjóða á danskt sumarkvöld sem haldið verður í Hagkaup Smáralind þann 22. apríl.
Á danska sumarkvöldinu verður boðið upp á förðunarkennslu sem Sara Björk Þorsteinsdóttir leiðir ykkur í gegnum en hún hefur unnið með merkinu s.l. þrjú ár. Sara mun fara yfir vinsælustu förðunartrendin fyrir sumarið ásamt því að kynna brot af því besta af dönsku vörunum sem GOSH hefur upp á að bjóða.
Námskeiðið er frítt en skráning fer fram hér að neðan og það er takmarkað sætapláss. Athugið að það er 14 ára aldurstakmark á námskeiðið og 14-16 ára þurfa að koma í fylgd með forráðamanni.
Ráðgjafar verða á svæðinu til að aðstoða ykkur að finna vörur sem mæta ykkar þörfum.
Námskeiðið hefst kl. 19:15 en við viljum hvetja fólk til þess að mæta tímanlega.
Við munum draga út þrjá heppna vinningshafa á námskeiðinu sem fá veglega gjöf frá Gosh Copenhagen.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Skráning er hér að neðan.
Við munum senda þátttakendum áminningu í tölvupósti daginn fyrir viðburðinn.
1.Fullt nafn(Required.)
2.Netfang (verður eingöngu notað í þeim tilgangi að senda áminningu og upplýsingar varðandi sumarkvöldið)(Required.)
3.Aldur(Required.)