Könnun á viðhorfum íbúa til samfélagsins við Tálknafjörð í ágúst-september 2026 (íslenska, pólska og enska)

Kynning á könnun og spurning um samþykki

Kæri íbúi á Tálknafirði eða nærsveitum!
Þú ert vinsamlegast beðin(n) um að svara könnun sem hér fer á eftir um viðhorf þitt til búsetu í byggðarlaginu. Tilgangur könnunarinnar er að ná fram viðhorfum íbúa, í upphafi þátttöku í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir, sem Byggðastofnun er í forsvari fyrir á landsvísu. Ráðgert er að sambærileg viðhorfakönnun verði lögð fyrir íbúa aftur við lok verkefnis, að fimm árum liðnum, þegar Byggðastofnun mun draga sig í hlé úr verkefninu. Ákveðið hefur verið að leggja sambærilega könnun fyrir í öllum nýjum þátttökubyggðarlögum og er þessi könnun því mikilvægur þáttur í að meta árangur í einstökum byggðarlögum og verkefninu Brothættum byggðum í heild.
Mikilvægt er að ná sem mestu svarhlutfalli í könnuninni svo að hægt verði að varpa ljósi á stöðu byggðarlagsins í upphafi verkefnis að mati íbúa. Ekki er hægt að rekja einstaka svör til einstaklinga. Við hvetjum þig til að taka þátt í könnuninni og leggja þitt lóð á vogarskálar í upphafi verkefnisins Brothættar byggðir á Tálknafirði og nærsveitum. Þú getur smellt á eftirfarandi tengil til að taka þátt í könnuninni, sem verður opin til 11. september næstkomandi.
Athugið að með Tálknafirði og nærsveitum er eingöngu átt við samfélagið við Tálknafjörð, þ.e. þorpið og sveitabýlin við fjörðinn.
Með góðum kveðjum,
Helga Harðardóttir, Heba Guðmundsdóttir og Kristján Þ. Halldórsson,
fulltrúar Brothættra byggða hjá Byggðastofnun.
Samþykki fyrir þátttöku í viðhorfskönnun
1.Viltu halda áfram og taka þátt í könnuninni?(Áskilið.)