Undirbúningsvinna er í gangi fyrir smíði á nýrri ábendingagátt Hafnarfjarðarbæjar.
Ábendingagátt er farvegur fyrir íbúa og aðra til að koma á framfæri ábendingum um það sem betur má fara eða laga þarf í umhverfi eða þjónustu bæjarins.
Í þessari könnun viljum við kanna viðhorf og notkun íbúa á núverandi ábendingagátt sem er á vefslóðinni abendingar.hafnarfjordur.is eða frá forsíðu hafnarfjordur.is.
Með því að svara hjálpar þú okkur að hanna ábendingagátt sem gerir þér auðveldara að hafa áhrif á þitt nærumhverfi og þjónustu bæjarins.
Það tekur um 3-5 mínútur að svara könnuninni.
Svara þarf könnuninni fyrir 23. mars 2026
