Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Þekkingarverðlauna FVH 2026.
Við val á Þekkingarfyrirtæki ársins verður horft til fyrirtækja sem hafa með árangursríkum hætti bætt við tekjustrauma fyrirtækis á síðustu árum í formi ytri vaxtar eða með útvíkkun á rekstri utan kjarnastarfsemi.
Þá verður litið sérstaklega til fyrirtækja þar sem mælanlegur árangur hefur náðst í rekstrarhagræðingu, til að mynda með samnýtingu innviða og mannauðs. Einnig verður horft til þess hvort fyrirtæki hafi sett fram skýra vaxtarstefnu og með markvissum hætti skilað ávinningi af sameiningum og samþættingu til viðskiptavina.
Einnig er leitast eftir tilnefningum fyrir viðskiptafræðing eða hagfræðinga ársins.