Aðgengi og sýnileiki ummerkja eftir hamfarir í Grindavík - Hugmyndasöfnun |
Grindavíkurbær ásamt Batteríinu arkitektastofu vinna að framtíðarsýn fyrir Grindavík þar sem unnið verður með möguleika á uppbyggingu þjónustu fyrir íbúa og ferðamenn. Niðurstöðurnar verða kynntar í formi „tillögu að rammaskipulagi“. Grindavíkurbær óskar eftir hugmyndum frá Grindvíkingum um hvaða ummerki jarðhræringanna Grindvíkingar vilja varðveita, og þá í hvaða formi.