Kæri þátttakandi,

Þessi könnun er gerð til að afla upplýsinga um heilsu, líðan og þjónustuþarfir Íslendinga sem dvelja eða eru búsettir á Costa Blanca á Spáni.

Markmið verkefnisins er að meta þörf fyrir íslenska heilbrigðis-, hjúkrunar-, endurhæfingar- og félagsþjónustu á svæðinu og skapa betri grunn fyrir framtíðaruppbyggingu þjónustu sem styður við öryggi, lífsgæði og vellíðan íslenska samfélagsins á Costa Blanca.

Sérstök áhersla er lögð á að kanna þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og endurhæfingu með íslensku fagfólki á svæðinu.

Niðurstöðurnar munu nýtast við áframhaldandi þróun verkefnisins, skipulagningu þjónustu og samtal við íslensk stjórnvöld, heilbrigðisyfirvöld og aðra hagaðila.

Öll svör eru nafnlaus og trúnaðarmál.

Könnunin tekur um 5–10 mínútur að svara.

T