Innleiðing nýrrar evrópskrar lyfjalöggjafar (NPL)

Á vettvangi Evrópusambandsins er unnið að umfangsmiklum breytingum á lyfjalöggjöf sem munu að endingu taka gildi hér á landi. Innleiðing löggjafarinnar er á hendi heilbrigðisráðuneytisins, en Lyfjastofnun er nú þegar að undirbúa þær breytingar sem framundan eru og áhrif þeirra á starfsemi stofnunarinnar og hagsmunaaðila.

Í tengslum við undirbúninginn hyggst Lyfjastofnun standa fyrir upplýsingafundi þar sem farið verður yfir helstu breytingar og áhrif þeirra á starfsemi hagsmunaaðila. Til að fundurinn nýtist sem best óskar Lyfjastofnun eftir að heyra sjónarmið ykkar um hvaða málefni skipta mestu máli og hvernig fundarfyrirkomulag hentar best.

Svör verða eingöngu notuð til að undirbúa og móta dagskrá upplýsingafundarins og svör við opnum spurningum verða birt nafnlaust.
1.Hefur þú áhuga á að sitja upplýsingafund um innleiðinguna?(Required.)