Grindavík – Saman í sókn, úr samtali í aðgerðir!
Verkefnið Grindavík – saman í sókn er framhaldsverkefni sem byggir á þeirri vinnu sem þegar hefur átt sér stað með fyrirtækjum og frumkvöðlum.
Markmið verkefnisins er að virkja samstarf, hraða aðgerðum og styðja við uppbyggingu fjölbreytts og samkeppnishæfs atvinnulífs í bænum.
Áhersla verkefnisins er á að tengja saman ólíka aðila innan vistkerfis Grindavíkur – fyrirtæki, stofnanir og frumkvöðla – og vinna markvisst að þróun forgangsverkefna sem styðja við verðmætasköpun, nýsköpun og jákvæða framtíðarsýn.
Verkefnið byggir á hugmyndafræði klasasamstarfs og fyrri kortlagningarvinnu þar sem samtal er fært yfir í skýr verkefni og framkvæmd.
Vinnulag og þátttaka
Í framhaldsverkefninu verður unnið í markvissum vinnuhópum þar sem þátttakendur velja þau verkefni sem þeir vilja leggja sitt af mörkum til. Hver hópur vinnur að skilgreindum áherslum með stuðningi verkefnateymis.
Markmiðið er að:
- hraða þróun lykilverkefna
- efla samstarf þvert á atvinnugreinar
- virkja þekkingu og tengsl þátttakenda
- skapa raunverulegar lausnir og ný tækifæri
Áherslur verkefnisins
Þátttakendur velja 1–2 áhersluverkefni sem þeir vilja taka þátt í:
- Skipulag, samstarf og innviðir - stofnun félags „Atvinnulíf Grindavíkur" og samnýting húsnæðis/þróunaraðstöðu
- Upplifun við höfnina og hafið - „Behind the scenes" upplifun og matartengd vara úr hafinu
- Nýting jarðhræringasögunnar - saga eldsumbrotanna sem upplifunar- og frásagnarrammi
- Samræmd ímynd og markaðssetning - „Grindavík í gangi", upplýsingasíða og „Grindavíkur-dagur”, samfélagssáttmáli
- Bláa hagkerfið og hringrásarhugsun - bætt nýting hafsins og þvergreinasamstarf
- Nýsköpun og þekkingarsamstarf - kortlagning tengslanets og samstarf við háskóla/klasa
Hvað fá þátttakendur?
- Aðgang að markvissu samstarfsumhverfi og vinnuhópum
- Tækifæri til að hafa áhrif á uppbyggingu atvinnulífs í Grindavík
- Tengingar við aðra lykilaðila í vistkerfinu
- Stuðning við þróun hugmynda og verkefna
- Þátttöku í sameiginlegri framtíðarsýn og aðgerðum
Kynningarfundur og umsóknarfrestur
📍 Kynningarfundur: 7. maí kl. 15:00 í Grindavík
🗓 Umsóknarfrestur: til 11. maí
Lokaorð
Verkefnið er fyrir þau sem vilja taka virkan þátt í uppbyggingu Grindavíkur og leggja sitt af mörkum til framtíðar. Nú er tækifæri til að færa hugmyndir í framkvæmd – úr samtali í aðgerðir.
