Sælkerakvöld með Casper Sobczyk
Hagkaup kynnir einstakan viðburð þar sem danski stjörnukokkurinn Casper Sobczyk kemur til landsins og heldur glæsilegt sælkerakvöld í Hagkaup Smáralind þriðjudaginn 24. febrúar kl. 17:30.
Um er að ræða sérstakt matreiðslukvöld þar sem gestir fá að upplifa matargerð í hæsta gæðaflokki, hitta kokkinn sjálfan og smakka á réttum sem hann útbýr á staðnum.
Takmarkað sætapláss er á viðburðinn svo um að gera að skrá sig.
Við biðjum ykkur að senda póst með afskráningu á markadsdeild@hagkaup.is ef þið skráið ykkur en sjáið ykkur svo ekki fært að mæta.
Hlökkum til að sjá ykkur!