Hér eru lagðar fyrir spurningar um tómstundir á dvalar- og hjúkrunarheimilum landsins
Í grundvallaratriðum má segja að tómstundir eigi sér stað í frítíma og er athöfn, hegðun eða starfsemi þar sem einstaklingurinn lítur sjálfur á sem tómstund og er frjálst val og hafi í för með sér ánægju og jákvæð áhrif. Kjarni tómstunda má segja að felist í vellíðan og aukningu á lífsgæðum.
Hér geta íbúar með eða án aðstoðar aðstandenda sinna svarað spurningum og skrifað umsagnir eða athugasemdir um tómstundir innan dvalar- og hjúkrunarheimila á Íslandi. Aðstandendur eru einnig hvattir til að tilgreina ef þeir svara án aðkomu íbúa.
Höfundur mun taka saman svör og niðurstöður könnunarinnar, rita grein og birta í kjölfarið.
Könnunin er nafnlaus og verða svör aldrei rekin til þátttakenda.
Höfundur þakkar þátttakendum viðleitnina og vill jafnframt taka fram að ef þátttakendur eru með einhverjar athugasemdir eða vilja koma öðru á framfæri en kemur fram í könnun er velkomið að senda á höfund tölvupóst, helgavala72@gmail.com
Höfundur er Helga Vala Gunnarsdóttir, nemi í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ og sjálfstæður ráðgjafi.