Fermingarkvöld Hagkaups á Akureyri
Fermingarkvöld Hagkaups verður haldið í samstarfi við Beautyklúbbinn 5. mars kl. 17:30 í Hagkaup Akureyri. Á kvöldinu verður boðið upp á létta förðunar og húðumhirðu kennslu ásamt því að við kynnum hluta af þeim frábæru vörum sem við höfum upp á að bjóða fyrir ferminguna. Lilja Gísladóttir förðunarfræðingur og markaðsfulltrúi Hagkaups sér um kennsluna.
Boðið verður uppá smakk af frábærum smáréttum sem við erum með til sölu í verslun okkar á Akureyri.
Takmörkuð sæti í boði en fermingarbörn þurfa að koma í fylgd með forráðamönnum.
Hlökkum til að sjá ykkur.