Leitum að þátttakendum í húðrannsóknVið leitum að einstaklingum (40 ára og eldri) sem hafa áhuga á að taka þátt í húðrannsókn á vegum Húðlæknastöðvarinnar og BIOEFFECT.
Þátttaka felur í sér að mæta í
djúpan Erbium laser á Húðlæknastöðinni.
Hvað er djúpur Erbium laser?Djúpur Erbium laser er mjög öflugur “ablative” laser sem tekur ysta lagið af húðinni þannig að ný húð myndast á yfirborðinu með færri hrukkum og línum, meiri þéttleika og færri litabreytingum. Djúpur Erbium laser er ein öflugasta lasermeðferð sem til er í dag, engin önnur meðferð örvar eins mikið nýmyndun kollagens og elastíns í húðinni.
Sjá nánar um meðferð.
Eftir lasermeðferð má gera ráð fyrir að batatíminn sé um 7 dagar.
Í framhaldi af meðferðinni færð þú 3xGF Recovery húðvörur frá BIOEFFECT og rannsóknin felst í því að meta ávinninginn af því að nota vörurnar til að stytta batatímann og styðja við endurheimt og árangur húðmeðferðarinnar.
MyndatakaStrax eftir meðferð og í tvö önnur skipti á tímabilinu verða teknar fyrir- og eftir myndir, sem Húðlæknastöðin og BIOEFFECT mega þá nota í kynningarefni til að fjalla um rannsóknina, áhrif meðferðarinnar og ávinninginn.
SólbaðVinsamlegast athugið að þátttakendur mega ekki vera sólbrúnir eða á leiðinni í sól næstu 4 vikur eftir meðferð.
SkráningFylltu út umsókn hér fyrir neðan ef þú hefur áhuga á að taka þátt í rannsókninni: